Tuesday, 24 July 2012
Sumarhörkur
sykursætar eplakinnar jólanna,
bíða milli vonar og ótta, ofan í kassa í bílskúrnum.
Á meðan mykjudreifarinn vinnur sitt hljóða og
illa þefjandi starf í sumarhörkunum.
morgunn
Skært ljós
læðist inn um augun.
Kúrilíus.
Kaffi-ilmur leikur um.
Það vantar klósettpappír á klósettið á jarðhæðinni.
Skeiðaglamur,
á íkeísku postulíni
í dag er spariseríósdagur.
Hvað eru Stemmur
"Stemning merkir skap, geðblær eða einhvers konar hugrænt andrúmsloft".(tekið af vísindavefnum )
Stemmur eru því mín stytting á orðinu stemmning en með ljóðablæ. Ljóðin flæða í vissri stemmningu og ef þau eru góð þá fanga þau stemninguna í augnablikinu, ef ekki þá ekki... Að lesa ljóð á að vera eins og detta inn í augnablik sem liðið er og upplifa það innra með sér í þetta sama augnablik, aftur. Að sjá kerti sem lýsti einu sinni, lýsa aftur.
En ljóð fanga ekki bara ljósar stundir, heldur allar stundir. Þannig að nú hefi ég einsett mér að fanga líf mitt í ljóði, daglega í eitt ár. Ein stemma á dag, veskú!
Subscribe to:
Posts (Atom)