Tuesday, 24 July 2012
Hvað eru Stemmur
"Stemning merkir skap, geðblær eða einhvers konar hugrænt andrúmsloft".(tekið af vísindavefnum )
Stemmur eru því mín stytting á orðinu stemmning en með ljóðablæ. Ljóðin flæða í vissri stemmningu og ef þau eru góð þá fanga þau stemninguna í augnablikinu, ef ekki þá ekki... Að lesa ljóð á að vera eins og detta inn í augnablik sem liðið er og upplifa það innra með sér í þetta sama augnablik, aftur. Að sjá kerti sem lýsti einu sinni, lýsa aftur.
En ljóð fanga ekki bara ljósar stundir, heldur allar stundir. Þannig að nú hefi ég einsett mér að fanga líf mitt í ljóði, daglega í eitt ár. Ein stemma á dag, veskú!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment